Fara í efni

Latibær í íþróttahúsinu

Fundur
Nokkrar kátar stelpur úr 3., 4. og 5. bekk Grunnskólans á Þórshöfn ætla á laugardaginn 18. febrúar að sýna frumsamið leikrit, byggt á sögunum úr Latabæ. Sýningin verður haldin í íþróttahúsinu og hefst

Nokkrar kátar stelpur úr 3., 4. og 5. bekk Grunnskólans á Þórshöfn ætla á laugardaginn 18. febrúar að sýna frumsamið leikrit, byggt á sögunum úr Latabæ. Sýningin verður haldin í íþróttahúsinu og hefst kl. 12:45.

Sýningin er ætluð börnum 7 ára og yngri. Aðgangur er ókeypis.

Leikarar í sýningunni eru: Svalhildur Björt Siggeirsdóttir, Justynja Walejkio, Ingibjörg Sara Ásgeirsdóttir, Birta Rún Ásgeirsdóttir, Álfrun Marey Eyþórsdóttir og Marín Helgadóttir. Þær eru allar leikstjórar.

Stelpurnar hafa sett upp skrautlegar auglýsingar víða í þorpinu og nú ættu allir að skella sér leikhús á laugardaginn.