Laust starf í Íþróttamiðstöðinni á Þórshöfn
Íþróttamiðstöðin á Þórshöfn leitar eftir starfsmanni í sumarafleysingar frá júníbyrjun. Vinnutími er frá 07:30 til 14:00 aðra hverja viku og hina vikuna frá 14:00 til 20:30, einnig er þriðja hver helgi unnin, frá 10:30 til 17:30.
Starfið felur meðal annars í sér afgreiðslu, upplýsingagjöf til ferðamanna, vöktun gesta íþróttamiðstöðvarinnar og þrif.
Umsækjandi þarf að vera 18 ára, vera með hreint sakavottorð og búa yfir góðri samskiptahæfni. Grunnkunnátta í ensku og öðrum erlendu talmáli er kostur.
Um kaup og kjör fer samkvæmt viðeigandi kjarasamningum.
Umsóknir skal skila rafrænt á sund@langanesbyggd.is eða til skrifstofu Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður íþróttamannvirkja Langanesbyggðar í síma 468-1515