Laust starf hjá sveitarfélaginu Langanesbyggð!
Langanesbyggð er sameinað sveitarfélag Skeggjastaða- og Þórshafnarhrepps og þar búa um 530 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi. Undirstaða atvinnulífsins er öflugur sjávarútvegur - veiðar og vinnsla - sem hefur tryggt sig í sessi undanfarin ár og skapað forsendur fyrir aukinni þjónustu sveitarfélagsins. Gott og ódýrt íbúðarhúsnæði er til staðar. Í sveitarfélaginu er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar í ósnortinni náttúru. Samgöngur eru góðar, m.a. er flug fimm daga vikunnar til Þórshafnar frá Reykjavík um Akureyri.
Laust starf Íþrótta- og tómstundafulltrúa!
Laust er til umsóknar starf íþrótta- og tómstundafulltrúa Langanesbyggðar með aðsetur á Þórshöfn eða á Bakkafirði.
Helstu verkefnin felast í því að samræma og efla starfsemi íþrótta- og æskulýðsfélaga í sveitarfélaginu ásamt því að sinna forvarnarstarfi í samvinnu við vímuvarnarráð og vinna almennt að eflingu hvers konar félagsstarfssemi í sveitarfélaginu.
Umsækjendur skulu hafa menntun á sviði íþrótta- og tómstundamála og/eða reynslu af störfum á þessum vettvangi.
Leitað er eftir einstaklingi með frumkvæði sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi en um leið spennandi verkefni í samfélagi sem er í mótun.
Umsóknarfrestur um ofangreint starf er til og með miðvikudagsins 23. júlí nk. og skal senda umsóknir á skrifstofu Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn.
Nánari upplýsingar veita Björn Ingimarsson eða Björn Guðmundur, í síma 468 1220 einnig má hafa samband um tölvupóst í bjorn@langanesbyggd.is.