Fara í efni

Laust starf hjá sveitarfélaginu Langanesbyggð!

Íþrótta- og tómstundafulltrúi!Laust er til umsóknar starf íþrótta- og tómstundafulltrúa Langanesbyggðar með aðsetur á Þórshöfn eða á Bakkafirði.  Helstu verkefnin felast í því að samræma og efla

Íþrótta- og tómstundafulltrúi!

Laust er til umsóknar starf íþrótta- og tómstundafulltrúa Langanesbyggðar með aðsetur á Þórshöfn eða á Bakkafirði. 

Helstu verkefnin felast í því að samræma og efla starfsemi íþrótta- og æskulýðsfélaga í sveitarfélaginu ásamt því að sinna forvarnarstarfi í samvinnu við vímuvarnarráð og vinna almennt að eflingu hvers konar félagsstarfssemi í sveitarfélaginu.

Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun á sviði íþrótta- og tómstundamála og/eða reynslu af störfum á þessum vettvangi. 

Leitað er eftir einstaklingi með frumkvæði sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi en um leið spennandi verkefni í samfélagi sem er í mótun.

Umsóknarfrestur um ofangreint starf er til og með mánudagsins 15. september nk. og skal senda umsóknir á skrifstofu Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn.

Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, sveitarstjóri, í símum 468 1220 og 895 1448 einnig má hafa samband um tölvupóst í bjorn@langanesbyggd.is.

Langanesbyggð er sameinað sveitarfélag Skeggjastaða- og Þórshafnarhrepps og þar búa um 500 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi. Undirstaða atvinnulífsins er öflugur sjávarútvegur - veiðar og vinnsla - sem hefur tryggt sig í sessi undanfarin ár og skapað forsendur fyrir aukinni þjónustu sveitarfélagsins. Í sveitarfélaginu er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og  glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar í ósnortinni náttúru. Samgöngur eru góðar, m.a. er flug fimm daga vikunnar til Þórshafnar frá Reykjavík um Akureyri.