Fara í efni

Leikskóli - breytt aðgengi

Fréttir
Vegna niðurrifs leikskólabyggingar við Fjarðarveg 5a og undirbúnings fyrir byggingu nýs leikskóla þar verður aðkoma barna og foreldra þeirra við Hálsveg, ekki Miðholt eins og verið hefur.
Vegna niðurrifs leikskólabyggingar við Fjarðarveg 5a og undirbúnings fyrir byggingu nýs leikskóla þar verður aðkoma barna og foreldra þeirra við Hálsveg, ekki Miðholt eins og verið hefur.
 
Þessi breyting hefur í för með sér aukna umferð um Hálsveg á meðan framkvæmdum stendur, sem vonast er til að ljúki síðari hluta septembermánaðar nk.
 
Sveitarfélagið þakkar íbúum við Hálsveg auðsýnda þolinmæði á meðan framkvæmdum stendur og biðst velvirðingar á því ónæði sem skapast kann á verktímabilinu.