Fara í efni

Leiksýningin Pönnukakan hennar grýlu

Fundur
Leiksýningin Pönnukakan hennar grýlu verður sýnd í félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn þriðjudaginn 11. desember og hefst sýningin kl 15:00. Sýningin er fyrir leikskólabörnin og 1.-4. bekk o

Leiksýningin Pönnukakan hennar grýlu verður sýnd í félagsheimilinu Þórsveri á Þórshöfn þriðjudaginn 11. desember og hefst sýningin kl 15:00. Sýningin er fyrir leikskólabörnin og 1.-4. bekk og er í boði foreldrafélaganna.

Bernd Ogrodnik kemur hér með skemmtilega og fallega jólasögu sem er unnin upp úr evrópskri þjóðsögu sem flestir ættu að kannast við. Hann nýtur aðstoðar hrífandi leikbrúða sem unnar eru úr tré, lifandi tónlistar og virkrar þátttöku áhorfenda.
Sagan segir frá hugvitsamri pönnuköku sem nær að flýja steikarpönnu Grýlu með það fyrir augum að ferðast alla leið í arma Jesú litla og foreldra hans sem dvelja svöng og köld í fjárhúsi í Betlehem. En á vegi hennar verða margir sem vilja sinn skerf af kökunni.