Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minnir á að Lífshlaupið 2017 hefst 1. febrúar. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.
Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:
vinnustaðakeppni frá 1. 21. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
framhaldsskólakeppni frá 1. 14. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
grunnskólakeppni frá 1. 14. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið
Eins og ávalt hvetjum við alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum.
Skráning er í fullum gangi og um að gera að taka þátt frá upphafi. Skráningarferlið er einfalt og þægilegt. Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu. Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag.
Við óskum eftir liðsinni ykkar við að hvetja vinnustaði, grunnskóla og einstaklinga í kringum ykkur til þátttöku. Við hvetjum ykkur einnig til þess að segja frá Lífshlaupinu á ykkar heimasíðu. Hægt er að fá hnapp hjá ÍSÍ til að setja inn á heimasíðuna sem leiðir áhugasama inn á heimasíðu verkefnisins.
Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á hronn@isi.is eða í síma: 514-4000.
SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á www.lifshlaupid.is