Lyfja Þórshöfn - Umsjón lyfjaútibús Þórshöfn - Hlutastarf
Við leitum að umsjónarmanni fyrir Útibú Lyfju á Þórshöfn.
Starfið felst í yfirumsjón með búð og framstillingum auk þess að sinna afgreiðslu og ráðgjöf til viðskiptavina. Umsjónarmaður ber ábyrgð á að búðin sé ávallt hrein og snyrtileg, tekur á móti vörum, bókar reikninga og fylgist með birgðum.
Hæfniskröfur:
· Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
· Rík þjónustulund og áhugi á mannlegum samskiptum
· Jákvæðni og gott viðmót
· Geta til að starfa undir álagi
· Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
· Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Vinnutími er sem hér segir:
· Mánudagar 10-16
· Þriðjudagar 10-15
· Fimmtudagar 10-16
· Föstudagar 10-15
Starfið er tímabundið frá 1.júní 2021- 15.ágúst 2022
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingólfur Magnússon, lyfsali Lyfju Húsavík í síma 464-1212 eða ingolfur@lyfja.is.