Fara í efni

Malbikunarframkvæmdir á Þórshöfn!

Íþróttir
Eins og áður hefur komið fram  í fréttabréfi er stefnt að malbikunarframkvæmdum á Þórshöfn í sumar en að þeim loknum munu allar íbúðargötur í þorpinu verða lagðar bundnu slitlagi. Hér með er þeim

Eins og áður hefur komið fram  í fréttabréfi er stefnt að malbikunarframkvæmdum á Þórshöfn í sumar en að þeim loknum munu allar íbúðargötur í þorpinu verða lagðar bundnu slitlagi. Hér með er þeim einstaklingum og fyrirtækjum á Þórshöfn sem kjósa að fá heimreiðar malbikaðar bent á að setja sig í samband við skrifstofu sveitarfélagsins og koma á framfæri fermetrafjölda og hvort þörf muni verða á jarðvegsskiptum. Sveitarfélagið hefur í hyggju að semja við verktaka um framkvæmdir fyrir einstaklinga og fyrirtæki samhliða framkvæmdum fyrir sveitarfélagið þannig að þeir fái þar með notið bestu mögulegu kjara.

Upplýsingar skulu berast skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn í síðasta lagi mánudaginn 26. maí nk.