Markaðsstemming á Kátum dögum
Það var lifandi markaðsstemming við höfnina á Þórshöfn í dag. Þar mátti finna ýmsan söluvarning, smakka lifandi kúfisk og fiskisúpu, en einnig var opið í Gallerí Beitu og Styrk í gömlu sundlauginni. Dagskráin heldur áfram í kvöld með dansleik í Þórsveri og þar verður eflaust mikið stuð. /GBJ
Lifandi kúskel á ís
Girnilegir fiskiréttir voru í boði ásamt hvítvínstári
Ekki að spyrja að Holtsfrúnni sem hristi fram nýbakað brauð í morgun ásamt rabbarabarasaft og fleira góðgæti
Kajakræðarinn knái Guðni Páll hefur verið að sniglast á Þórshöfn síðustu daga og kíkti við í Beitunni, fylgist með ferðum hans á www.aroundiceland2013.com og sjáið meðal annars flottar myndir þar sem hann rær nærri Langanesi
Flottar dömur úr Dalnum
Nýja mölin fyrir framan Beituna hefur verið að stríða mönnum, þá er nú gott að hafa kraftakellur nærri...
Svo þarf að ganga frá eftir herlegheitin