Máttur kvenna - enn opið fyrir umsóknir
Máttur kvenna er 11 vikna nám fyrir konur sem vilja öðlast þekkingu og færni í rekstri fyrirtækja.
Kennsla fer fram í fjarnámi og geta nemendur því hlustað á fyrirlestra á netinu og unnið verkefnin
hvenær sem þeim hentar. Fyrirlestrar eru 4-5 í hverju námskeiði og eru birtir á fjarnámsvef
skólans samkvæmt kennsluáætlun hvers námskeiðs. Þar að auki eru kennslustundir á vinnulotum
þar sem lögð verður áhersla á hópavinnu nemenda. Vinnuhelgi er í upphafi og um miðbik námsins
en því lýkur svo með formlegri útskrift.
Með nýju sniði
Máttur kvenna er nú skipulagt með nýju sniði. Nýnæmið felst fyrst og fremst í því að nú verður
enn meiri áhersla lögð á hagnýtingu námsins, auk þess sem vinsæl námskeið eins framsækni og
tjáningu með Sirrý og fræðsla um nýsköpun og frumkvöðla munu fá aukið vægi. Jafnframt verða
ný fög kennd eins og stofnun fyrirtækja og rekstrarform. Þá hefur einnig verið bætt við vinnuhelgi
um miðbik námsins.
Skólagjöld og forkröfur
Engar sérstakar forkröfur eru gerðar varðandi fyrra nám. Þátttökugjald er kr. 149.000. Innifalið í
verðinu eru öll námsgögn og tvær vinnuhelgar með gistingu og fæði. Námið veitir ekki einingar.