Matur á Nausti á þriðjudögum
13.02.2012
Fundur
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Naust býður öllum íbúm Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps, 60 ára og eldri, í mat í hádeginum á þriðjudögum. Á morgun, þriðjudaginn 14. febrúar, verður þorramatur á b
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Naust býður öllum íbúm Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps, 60 ára og eldri, í mat í hádeginum á þriðjudögum. Á morgun, þriðjudaginn 14. febrúar, verður þorramatur á boðstólnum. Matseðil næstu vikna má finna hér.
Allir íbúar sveitarfélaganna, 60 ára og eldri, eru hvattir til að koma við á Nausti, fá sér gott að borða og njóta góðs félagsskapar.
Nánari upplýsingar gefur Kristín Thorberg, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Nausti, í síma 468-1322.