Fara í efni

Neyðarvarnir Rauða kross Íslands í Þingeyjarsýslu

Fréttir
Rauði krossinn Þingeyjarsýslu
Rauði krossinn Þingeyjarsýslu
Rauði krossinn í Þingeyjarsýslu heldur upplýsinga- og fræðslufund í Grunnskólanum á Þórshöfn fimmtudaginn 19. nóvember kl. 19:30. Fundurinn er um neyðarvarnir RKÍ í Þingeyjarsýslu og þá sérstaklega á Þórshöfn en grunnskólinn þar er skilgreindur sem fjöldahjálparstöð þegar á þarf að halda.

Eitt af þeim verkefnum sem Rauði krossinn sinnir er opnun og mönnun fjöldahjálparstöðva í almannavarnaástandi eða tilfellum þar sem atburður er stærri en hið daglega viðbragð ræður auðveldlega við. Sjá hér: http://www.raudikrossinn.is/page/rki_hvad_neydarvarnir

Til fundarins er stefnt fjöldahjálparliðum Rauða krossins á Þórshöfn og nágrenni, ásamt öllum öðrum sem hafa áhuga á að vita um hvað þetta verkefni snýst.
Þetta verður léttur fundur með kaffi og konfekti - engin skuldbinding er fólgin í því að mæta.