Níu verkefni styrkt á Bakkafirði
Níu verkefni styrkt á Bakkafirði
Þann 5. júní sl. voru um 13,5 milljónum úr verkefninu Betri Bakkafjörður vegna ársins 2020 úthlutað til níu samfélagseflandi verkefna á Bakkafirði. Auglýst var síðastliðinn apríl, þrettán umsóknir bárust um styrki að upphæð kr. 57,3 milljónir. Styrkirnir eru hluti af verkefni Byggðastofnunar, Brothættar byggðir.
Heildarlisti yfir styrkþega vegna styrkja fyrir árið 2020:
Nafn umsækjanda Nafn verkefnis Styrkupphæð
Bjargið ehf, fiskvinnsla Endurbætur á starfsmannarými 1.000.000,-
Bakkfiskur ehf Bragginn – menningarhús 5.000.000,-
Bjargið ehf, fiskvinnsla Endurbætur á vinnsluhúsnæði 2.000.000,-
Baldur Öxdal Halldórsson Halldórshús, byggt um 1906, endurbætur 1.000.000,-
Langanesbyggð Endurbætur á tjaldstæði Bakkafirði 650.000,-
Þórir Örn Jónsson Markaðsátak Bakkafjarðar 1.500.000,-
Malgorzata Bluszko Ræktun matrjurta til endursölu 550.000,-
N4 ehf. Uppskrift að góðum degi í Bakkafirði 1.500.000,-
Fornleifastofnun/sóknarnefnd Skeggjastaðir fornminjar 370.000,-
Kr.13.570.000,-
Um er að ræða fjölbreytt verkefni sem hlutu styrki að þessu sinni. Verkefni s.s. í uppbyggingu og endurreisn atvinnufyrirtækja, framleiðslu á matjurtum, markaðsátak fyrir Bakkafjörð, fornleifarannsóknir, endurbygging Halldórshúss sem byggt var árið 1906. Stærsti styrkurinn að þessu sinni var úthlutað til uppbyggingar á Bragganum sem stendur á tanganum ofan við gömlu höfnina. Þar er gert ráð fyrir fjölbreyttri listastarfsemi, auk þess verður íbúð í húsnæðinu sem getur hýst listamenn sem dvelja tímabundið á Bakkafirði. Markmiðið með þessum verkefnum er að styrkja innviði Bakkafjarðar, skapa atvinnu og fjölga fólki á svæðinu í samræmi við stefnumótun fyrir verkefnið sem samþykkt var á íbúafundi.
Verkefnið Brothættar byggðir miðar að víðtæku samráði og því að virkja þekkingu og getu íbúa byggðarlaga til að móta framtíðarsýn, markmið og lausnir. Enn fremur að virkja frumkvæði og samtakamátt íbúa og auka vitund þeirra um eigin þátt í þróun samfélagsins.
Fimmtudaginn 18. júní nk. kl. 16:00 fer fram úthlutun styrkja úr verkefninu Betri Bakkafjörður fyrir árið 2020. Úthlutunin fer fram að Hafnartanga 4, Bakkafirði. Veitingar í boði, allir velkomnir.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Áki Ragnarsson (olafur@ssne.is) verkefnisstjóri verkefnisins í síma 893-6434.