Fara í efni

Ný gögn um Drekasvæðið gefa meiri vonir um olíu

Fundur
Ný rannsóknargögn um Drekasvæðið, sem norskt fyrirtæki hefur unnið, gefa meiri vonir um olíu undan ströndum Íslands. Milli tíu og tuttugu olíufyrirtæki hafa sýnt áhuga á að bjóða í olíuleitina. AlþjóðNý rannsóknargögn um Drekasvæðið, sem norskt fyrirtæki hefur unnið, gefa meiri vonir um olíu undan ströndum Íslands. Milli tíu og tuttugu olíufyrirtæki hafa sýnt áhuga á að bjóða í olíuleitina.

Alþjóðlegur netmiðill, sem sérhæfir sig í fréttum af olíusvæðum á hafsbotni, greindi nýlega frá hinum nýju gögnum og sagði þau gefa meiri vonir um olíu undan ströndum Íslands. Í raun er um að ræða nýja úrvinnslu á gögnum sem íslensk og norsk stjórnvöld öfluðu fyrir tveimur áratugum. Fyrirtækið Spectrum, sem er með höfuðstöðvar í Noregi, beitti nýjustu tölvutækni til að fá betri og nákvæmari upplýsingar úr gögnunum og hafa sérfræðingar Orkustofnunar nú fengið aðgang að þeim.

Þeir Kristinn Einarsson, verkefnisstjóri olíuleitar, og Þórarinn Sveinn Arnarson, haffræðingur hjá Orkustofnun, sýndu dæmi í fréttum Stöðvar 2 hvernig þessi nýju gögn Spectrum sýna meðal annars flekki í jarðlögum á Drekasvæðinu sem þykja líklegir til að geyma olíu eða gas.

Spectrum auglýsir nýju gögnin til sölu á alþjóðamarkaði og hjálpar þannig íslenskum stjórnvöldum að markaðssetja Drekasvæðið. Þrátt fyrir efnahagskreppu og verðfall á olíu merkja Orkustofnunarmenn verulegan áhuga olíuleitarfyrirtækja á útboðinu en því lýkur í maí.

Horfa á Frétt