Ný róðravél, handlóð og lóðaplötur
07.08.2013
Fréttir
Nú er afrakstur áheitahlaupsins sem var í vor er kominn í hús, ný róðrarvél, handlóð og lóðaplötur.
Nú er afrakstur áheitahlaupsins í vor er kominn í hús, ný róðrarvél, handlóð og lóðaplötur. Valgerður og Þorsteinn Ægirsem sem stóðu að áheitahlaupinu eru að vonum ánægð með afraksturinn og vonast til að sem flestir eigi eftir að koma og prófa og nýta sér þessa góðu viðbót í þreksalinn í Íþróttamiðstöðinni. Þau vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra einstaklinga og fyrirtækja sem styrktu verkefnið.