Nýr hjúkrunarforstjóri kominn til starfa
21.09.2020
Fréttir
Nýr hjúkrunarforstjóri kom til starfa í dag 21. september á Naust. Hún heitir Karítas Ósk Agnarsdóttir uppalin á Þórshöfn, og útskrifaðist með hjúkrunarfræðimenntun frá Háskólanum á Akureyri, með fyrstu einkunn, vorið 2015. Síðan þá hefur hún unnið á sjúkradeild FSN í Neskaupstað.
Langanesbyggð óskar henni velfarnaðar í starfi og býður hana og fjölskyldu hennar velkomna.