Fara í efni

Nýr oddviti í Langanesbyggð

Fréttir
Á fundi sveitarstjórnar í gær, fimmtudaginn 29. júní, var Þorsteinn Ægir Egilsson kjörinn oddviti

Á fundi sveitarstjórnar í gær, fimmtudaginn 29. júní, var Þorsteinn Ægir Egilsson kjörinn oddviti Langanesbyggðar (t.v. á myndinni) og fráfarandi oddviti, Reynir Atli Jónsson var kjörinn varaoddviti.

Að loknu kjöri þakkaði Þorsteinn Ægir traust það sem honum væri sýnt með þessu kjöri og þakkaði bæði fyrrverandi oddvita og varaoddvita Huldu Kristínu Baldursdóttur fyrir þeirra störf og óskaði eftir góðu samstarfi við alla sveitarstjórnarmenn.