Fara í efni

Nytjamarkaður í Hafliðabúð!

Fundur
27.mars 2009Næstkomandi laugardag ætlum við að hafa nytjamarkaðinn í Hafliðabúð aftur opinn. Þar er fatnaður, skrautmunir, skartgripir, skótau, búsáhöld til sölu. Allur ágóði sölunnar rennur óskiptur

27.mars 2009
Næstkomandi laugardag ætlum við að hafa nytjamarkaðinn í Hafliðabúð aftur opinn. Þar er fatnaður, skrautmunir, skartgripir, skótau, búsáhöld til sölu. Allur ágóði sölunnar rennur óskiptur til Kristínar Svölu, sem nýlega gekkst undir hjartaaðgerð í Boston.

Ef enn eru einhverjir sem vilja losa eitthvað úr geymslum sínum verður tekið við varningi frá kl. 11:30 í Hafliðabúð og svo verður markaðurinn opinn til kl. 16:00. Endilega kíkið í geymslur og uppá háaloft og finnið eitthvað af ofantöldu til að leggja söfnuninni lið. Margt smátt gerir eitt stórt og flestir eru aflögufærir með eitthvað sem aðrir geta svo nýtt sér.

Seljum kaffi og vöfflur á staðnum,

Sjáumst hress, Saumaklúbburinn Gleðikonur og aðrir velunnarar!;)