Olíuleitin á Drekasvæðinu skapar störf
14 .jan 2009
Frétt á stöð 2
Olíuleitin sem verið er að bjóða út á Drekasvæðinu mun velta tugum milljarða króna og byrja að skapa störf og vaxandi umsvif á norðausturlandi þegar upp úr næstu áramótum.
Össur Skarphéðinsson mætti með sérfræðingasveit til þriggja funda í dag og í kvöld með sveitarstjórnarmönnum og íbúum á Norðausturlandi til að fara yfir skýrslu, sem iðnaðarráðuneytið hefur gert í samvinnu við Langanesbyggð og Vopnafjarðarhrepp, um þá þjónustu sem byggja þarf upp vegna væntanlegrar olíuleitar. Össur kveðst vera bjartsýnn á framhaldið.
Talið er að rannsóknarboranir geti hafist innan tveggja ára en þær kalla á borskip eða borpalla, með um eitthundrað starfsmönnum. Þá þegar þarf að vera klár heilmikil þjónustuaðstaða í landi. Vopnafjörður er talinn henta best sem birgðahöfn þaðan sem þjónustuskip munu sigla 2-3 ferðir í viku með matvæli, borstangir, sement og fleira. Þórshöfn þykir einnig koma vel til greina. Egilsstaðaflugvöllur talinn kjörinn sem þyrlumiðstöð en koma þarf upp aðstöðu fyrir þrjár þyrlur með byggingu flugskýlis. Þyrlusveitin yrði jafnframt að geta treyst á Þórshafnarflugvöll sem öryggisvöll.
,,Ég geri ráð fyrir að það geti verið tölvuvert að óbeinum störfum ég tala nú ekki um bein störf," segir Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri Vopnafjarðar.
Ef olíuleitin gengur að óskum og bjartsýnustu spár norskra sérfræðinga rætast gætu menn staðið frammi fyrir þeirri ákvörðun innan þriggja ára að hefja stórfellda uppbyggingu. Þá verður Gunnólfsvík staðurinn, í krikanum undir Langanesi. Í Gunnólfsvík segja sérfræðingarnir að sé upplagður staður fyrir stórskipahöfn, landrými nægt fyrir olíuiðnað og dýpið meira segja svo mikið að hingað megi draga inn borpalla til viðgerðar.
Núlifandi Íslendingar þekkja ekki annað en að suðvesturhornið hafi stöðugt sogað til sín fólkið úr öðrum landshlutum. Draumur manna hér um slóðir er að þetta snúist við. Olían sjái til þess að fólkið flykkist á norðausturhornið.