Fara í efni

Olíuvæntingar við Langanes

Fundur
Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps segir það styrkja verkefnið um þjónustumiðstöð við Bakkaflóa að tvö alþjóðleg fyrirtæki skuli hafa boðið í olíuleit á Drekasvæðinu. Það eigi hinsvegar alveg eftir að kSveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps segir það styrkja verkefnið um þjónustumiðstöð við Bakkaflóa að tvö alþjóðleg fyrirtæki skuli hafa boðið í olíuleit á Drekasvæðinu. Það eigi hinsvegar alveg eftir að koma í ljós við hvaða sveitarfélög eða fyrirtæki verði samið um þjónustu við Drekasvæðið verði olíuleit þar að veruleika. Heimamenn á Vopnafirði og Þórshöfn þekkja til beggja fyrirtækjanna sem buðu í olíuleitina og nokkur samskipti hafa verið við annað þessara fyrirtækja.
Þetta kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins, http://www.ruv.is/.