Opin kóræfing
Þriðjudaginn 24. apríl kl. 19-21 verður samæfing Kirkjukórs Langanesprestakalls og Kirkjukórs Snartastaðakirkju í Þórshafnarkirkju og viljum við bjóða öllum að koma og sjá og heyra hvað æft hefur verið síðustu mánuði. Louise hefur verið að æfa báða kórana og nú ætlum við að hittast og syngja saman.
Við teljum okkur ekki tilbúna í tónleika en viljum opna dyrnar fyrir gestum og gangandi, hvort sem er að syngja með eða setjast og hlusta. Þetta verður með frjálslegu formi þannig að hægt er að spjalla og spyrja. Kaffi og léttar veitingar.
Sérstaklega viljum við bjóða þeim sem langar e.t.v. að syngja með kórnum næsta vetur að koma og heyra hvað við syngjum fjölbreytt og skemmtileg lög t.d. Abba, Toto, ættjarðarlög, sálma og allt þar á milli.
Hlökkum til að sjá ykkur.