Opinn dagur á heilsugæslunni
12.03.2012
Fundur
Í tilefni af vígslu á nýju stafrænu framköllunar- og röntgentæki gefst íbúum og velunnurum Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, tækifæri á að koma í heilsugæslustöðina á Þórshöfn fimmtudaginn 15. mars f
Í tilefni af vígslu á nýju stafrænu framköllunar- og röntgentæki gefst íbúum og velunnurum Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, tækifæri á að koma í heilsugæslustöðina á Þórshöfn fimmtudaginn 15. mars frá kl. 11.30-13.30 og skoða hinn nýja búnað og kveðja þann gamla sem hefur þjónað íbúum héraðsins í hart nær 45 ár.
Um leið og við bjóðum fólki að koma og skoða búnaðinn viljum við þakka þeim sem styrkt hafa kaupin og þar með gert okkur kleift að fara í þessar breytingar.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.