Fara í efni

Ráðstefna um ferðamál á Norðurslóðum, Raufarhöfn

Fréttir
Rannsóknarstöðin RIF
Rannsóknarstöðin RIF
Raufarhöfn, 30. ágúst til 2. september 2016 Ráðstefnan er haldin á vegum IPTRN, samtaka fræðafólks sem rannsakar ferðamennsku á norðurslóðum. IPTRN leggur áherslu á að skilja hvata og áskoranir tengdar ferðaþjónustu á afskekktum svæðum norður- og suðurskauts.

Raufarhöfn, 30. ágúst til 2. september 2016

Ráðstefnan er haldin á vegum IPTRN, samtaka fræðafólks sem rannsakar ferðamennsku á norðurslóðum. IPTRN leggur áherslu á að skilja hvata og áskoranir tengdar ferðaþjónustu á afskekktum svæðum norður- og suðurskauts.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er:

„Ferðaþjónusta, fólk og vernduð svæði í víðáttu heimskautanna“.

Helstu málefni varða m.a. skipulag, verndun og umhverfisáhrif ferðaþjónustu auk sjónarmiða íbúa þessara svæða.

Íbúar svæðisins eru boðnir velkomnir á ráðstefnuna og hvattir til að kynna sér dagskrána nánar. Sérstaklega má benda á samfélagsvinnustofu sem haldin verður í félagsheimilinu Hnitbjörgum kl. 14.30 fimmtudaginn 1. September.

Þeir sem hafa hug á að mæta á þennan viðburð eru vinsamlegast beðnir um að senda póst á fri@nna.is eða silja@atthing.is eða hringja í síma 856 9500 / 464 9882

Dagskrána í heild sinni má nálgast hér:
http://www.rmf.is/en/conferences/5th-international-polar-tourism-research-network-iptrn

 

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna veita:
-Eyrún Jenný Bjarnadóttir, Rannsóknamiðstöð ferðamála: S: 525 4459; netfang: ebj@hi.is
-Halldóra Gunnarsdóttir, ferðaþjónustusamtökunum Norðurhjara: S: 892 8202; netfang: nordurhjari@simnet.is
-Jónína Sigríður Þorláksdóttir, Rannsóknarstöðinni Rif: S: 856 9500; rif@nna.is
-Silja Jóhannesd´dottir hjá Raufarhöfn og framtíðin: S: 464 9882; netfang: silja@atthing.is