Fara í efni

Rauðanesganga Ferðafélagsins á sunnudaginn.

Fréttir
Mynd: Sonja Súsanna Hallgrímsdóttir
Mynd: Sonja Súsanna Hallgrímsdóttir
Ferðafélagið Norðurslóð óskar félögum sínum til hamingju

Ferðafélagið Norðurslóð óskar félögum sínum til hamingju með hækkandi sól og boðar til fyrstu göngu ársins.   Hún verður farin sunnudaginn 18.janúar um Rauðanes í Þistilfirði.  
Á göngunni má sjá ótal fallegar bergmyndanir, hella, gatkletta og fuglabjörg.  Þetta er auðfarin gönguleið um 7 km. Lagt verður upp frá upplýsingaskilti kl.13.00.
Mætum vel skóuð og klædd  eftir veðri, og ekki skemmir að hafa með sér nestisbita og heitan drykk á brúsa.