Fara í efni

Samstarfsverkefni Barnabóls og Nausts.

1. desember 2007Heimir Ari, Elísabet Emma, Álfrún Marey og Elísabet Líf hafa farið reglulega í heimsókn á Naust í haust.Eldri borgarar og krakkarnir hafa málað með vatnslitum, sungið, hreyft sig saman

1. desember 2007
Heimir Ari, Elísabet Emma, Álfrún Marey og Elísabet Líf hafa farið reglulega í heimsókn á Naust í haust.
Eldri borgarar og krakkarnir hafa málað með vatnslitum, sungið, hreyft sig saman, steikt vöfflur, lagt á borð og brotið servíettur.
Nú síðast var byrjað í jólaföndri, búnir til músastigar og jólakort.
Samverustundirnar hafa verið mjög heimilislegar og ánægjulegar og gefið báðum aldurshópum mikið.
Í desember munum við hittast, syngja saman jólalög, hlusta á jólasögu og fá okkur léttar veitingar.

Myndir