Fara í efni

Sértækur byggðarkvóti á Bakkafjörð

Fréttir
Stjórn Byggðastofnunar hefur nú ákveðið að auglýsa eftir samstarfsaðilum á Bakkafirði um nýtingu allt að 150 þorskígildistonna til að stuðla að aukinni byggðafestu í sjávarbyggðum sem standa frammi fyrir bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Þetta eru mjög ánægjulegar fréttir fyrir atvinnulífið á Bakkafirði. Sveitarfélagið skorar á fyrirtæki á staðnum að skoða þennan möguleika vandlega.

Stjórn Byggðastofnunar hefur nú ákveðið að auglýsa eftir samstarfsaðilum á Bakkafirði um nýtingu allt að 150 þorskígildistonna til að stuðla að aukinni byggðafestu í sjávarbyggðum sem standa frammi fyrir bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.  Þetta eru mjög ánægjulegar fréttir fyrir atvinnulífið á Bakkafirði. Sveitarfélagið skorar á fyrirtæki á staðnum að skoða þennan möguleika vandlega.

Með breytingu á lögum nr 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Byggðastofnun hefur mótað eftirfarandi viðmið um úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þessari heimild.

Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem:

  • standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna skorts á aflaheimildum eða óstöðugleika í sjávarútvegi,
  • eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu,
  • eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða.

Í því skyni er stefnt að uppbyggingu í sjávarútvegi sem:

  • skapar eða viðheldur sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði konur og karla við veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum,
  • stuðlar að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma og dregur sem mest úr óvissu um framtíð sjávarbyggðanna.

Stjórn Byggðastofnunar hefur nú ákveðið að auglýsa eftir samstarfsaðilum um nýtingu allt að 150 þorskígildistonna til að stuðla að meginmarkmiðum verkefnisins á Bakkafirði.

Til að umsókn komi til greina þarf hún að innihalda greinargóða lýsingu á eftirfarandi þáttum:

  • Trúverðugum áformum um útgerð, vinnslu sjávarafurða eða aðra starfsemi.
  • Fjölda heilsársstarfa fyrir karla og konur.
  • Sem bestri nýtingu þeirra veiðiheimilda sem fyrir eru í byggðarlaginu.
  • Öflugri starfsemi til lengra tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina.
  • Jákvæðum áhrifum á önnur fyrirtæki og samfélagið.
  • Traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjanda.

Samstarf um uppbyggingu sjávarútvegs á Bakkafirði er háð því að fram komi umsóknir sem falla með trúverðugum hætti að meginmarkmiðum verkefnisins. Takist ekki slíkt samstarf á Bakkafirði mun þessi hluti aflamarks Byggðastofnunar verða nýttur með öðrum hætti.

Umsóknareyðublað, reglugerð um úthlutun og nýtingu veiðiheimilda ásamt nánari upplýsingum verður að finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is. á næstu dögum.

Nánari upplýsingar veita Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri og Sigurður Árnason starfsmaður þróunarsviðs.