Fara í efni

Skoðun eldvarnareftirlits í stofnunum og fyrirtækjum

Fréttir

Samkvæmt 20.gr. reglugerðar um eldvarnir og eldvarnaeftirlit nr. 723/2017 skal slökkviliðsstjóri gefa út eftirlitsáætlun eldvarnaeftirlits fyrir 1. febrúar ár hvert þar sem gerð grein fyrir hvaða mannvirki og lóðir, og starfsemi munu sæta eldvarnaeftirliti það árið.

Árið 2022 munu eftirfarandi stofnanir og fyrirtæki eiga von á heimsókn frá eldvarnaeftirliti.

Grunnskólinn Þórshöfn
Báran veitingahús
Íþróttahúsið VER
Félagsheimilið þórsver
Ísfélag bræðsla
Vegagerðin
Bjargið Bakkafirði
Löghæð gistiheimili
Lyngholt gistiheimili
Heilsugæslan
Kaffihús Bakkafirði
Ytra Lón Farm Hostel
Fræðasetur um forystufé, Svalbarði
Enn 1 Skálinn
Grásteinn Guesthouse.
Kjörbúðin.

Einnig mun verða farið á nokkur lögbýli í Langanesbyggð og Svalbarðshreppi og verður það tilkynnt til ábúenda með góðum fyrirvara.
Auk þessa mega önnur fyrirtæki og stofnanir eiga von á skoðun vegna tækirfærisleyfa og rekstarleyfa, og vegna öryggis- og lokaúttekta.

F.h. Brunavarna Langanesbyggðar
Þórarinn Þórisson
Slökkviliðsstjóri