Fara í efni

Skólagarðar Kofabyggð!

Íþróttir
Líkt og sl. sumar hefur verið ákveðið að bjóða nemendum 1. - 6. bekkjar grunnskólanna að taka þátt ræktun s.k. skólagarða í sumar.  Á Þórshöfn hefst starfsemin nú í vikunni (19. 23. maí) með nið

Líkt og sl. sumar hefur verið ákveðið að bjóða nemendum 1. - 6. bekkjar grunnskólanna að taka þátt ræktun s.k. skólagarða í sumar.  Á Þórshöfn hefst starfsemin nú í vikunni (19. 23. maí) með niðursetningu og mun ljúka með uppskeruhátíð í byrjun september.  Hverjum einstaklingi verður úthlutað útsæði, grænmetisplöntum/-fræi auk leiðsagnar um ræktun og umhirðu.

Einnig verður boðið upp á smíðavelli - kofabyggð fyrir sömu aldurshópa og er stefnt að því að sú starfsemi hefjist í lok júnímánaðar  Um verður að ræða tvo tíma á dag tvisvar í viku (kl. 10:00 - 12:00). Krakkarnir fá timbur og nagla en hamra þurfa þau að hafa með sér sem og málningu kjósi þau að mála mannvirkin. Þátttökugjald nemur kr. 1.500,- og skal greiðast á skrifstofum sveitarfélagsins við skráningu.

Umsjónarmenn skólagarða og kofabyggðar á Þórshöfn verða þeir Björgvin Þóroddsson og Sigurður Sigfússon, auk þess sem kennarar Grunnskólans á Þórshöfn aðstoða við starfsemi skólagarðanna nú í vikunni.