Skólahaldi í Grunskólanum á Þórshöfn aflýst í dag
07.02.2022
Fréttir
Í tilkynningu frá skólastjóra Grunnskólans á Þórshöfn sem send var út rétt í þessu segir:
Skólahaldi í Grunnskólanum á Þórshöfn er aflýst í dag vegna veðurs og manneklu.
Veðurspáin gerir ráð fyrir versnandi veðri hér með morgninum.
Hluti starfsmanna er enn í einangrun eða sóttkví og hluti kemst ekki vegna veðurs og ófærðar úr dreifbýli.
VIð sjáumst vonandi sem flest á morgun.
Hilma Steinarsdóttir
Grunnskólinn á Þórshöfn
sent úr Mentor.is