Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019
Undirbúningur er hafinn að stefnumótun fyrir Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019, í
samræmi við samning milli ríkisins og Eyþings.
Ákveðið hefur verið að halda fjóra opna svæðafundi til að ræða framtíð svæðanna og landshlutans og
safna hugmyndum og forgangsraða þeim.
Fundirnir eru öllum opnir og eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í að móta stefnu og áherslur landshlutans.
Fundarstaðir og fundartímar eru eftirfarandi:
12. maí (þriðjudagur), kl. 17:00 – Sal Framsýnar, Garðarsbraut 26, fyrir
Húsavík, Tjörneshrepp, Skútustaðahrepp og Þingeyjarsveit.
13. maí (miðvikudagur), kl. 17:00 – Félagsheimilinu Hnitbjörg, Raufarhöfn,
fyrir svæðið frá Kelduhverfi til Langanesbyggðar.
Tveir fundir verða haldnir síðar í Eyjafirði.
Í nýrri Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019 á sérstaklega að fjalla um nýsköpun og atvinnuþróun,
menningarmál, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilega þróun á svæðinu. Á fundunum verður fjallað um stöðu
Norðurlands eystra í þessum málaflokkum í stuttum kynningum og síðan unnið í hópum. Eyþing - samband sveitarfélaga
í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum hefur umsjón með vinnunni og nýtur aðstoðar Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og
Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar.
Æskilegt, en ekki skilyrði, er að þátttakendur skrái sig á fundina á netfangið:
linda@eything.is