Fara í efni

SÓTTVARNALÆKNIR OG ALMANNAVARNADEILD RLS

Fundur
 Sóttvarnarlæknir og Almannavarnardeild RLS sendu eftirfarandi bréf frá sér í upphafi skólaárs:                 &nb

 Sóttvarnarlæknir og Almannavarnardeild RLS sendu eftirfarandi bréf frá sér í upphafi skólaárs: 

                                       Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild RLS

________________________________________________________________________

Til skólastjórna

  1. Heimsfaraldur inflúensu A(H1N1)v sem ríður yfir um þessar mundir er tiltölulega vægur og skapar því ekki forsendur fyrir skorðum við skólahaldi. Skólastarf á að geta hafist með eðlilegum hætti næstu daga og vikur þrátt fyrir heimsfaraldur inflúensunnar.

  1. Unnið er að viðbragðsáætlun vegna inflúensufaraldurs fyrir skóla landsins í samvinnu menntamálaráðuneytis og skólastjórnenda. Gert er ráð fyrir að sú áætlun verði tilbúin fyrir 1. september 2009.

  1. Skólastjórnendur eru hvattir til að halda því á lofti við nemendur og starfsmenn skóla að hreinlæti skiptir mestu máli í að draga úr smithættu. Þar ber fyrst að nefna handþvott og að fólk hafi á sér einnota pappírsþurrkur til að hnerra eða hósta í. Vísað er á heimasíðuna www.influensa.is þar sem frekari upplýsingar er að finna.

  1. Veikist nemandi þannig að einkennin bendi til inflúensu, er honum ráðlagt að halda sig heima í sjö daga frá upphafi veikinda.

  1. Ekki er þörf á því að aðrir sem eru einkennalausir á heimili sjúklings haldi sig heima. Um leið og einkenna verður vart er mikilvægt að viðkomandi haldi sig heima í sjö daga frá upphafi einkenna.

  1. Ekki er mælt með fyrirbyggjandi veirulyfjameðferð í skólum.

  1. Vakin skal athygli á því að í síbreytilegum faraldri kunna að koma aðstæður þar sem endurmeta þarf þessar ráðleggingar. Til þess kann að koma að taka þurfi afstöðu til þess hvort tilteknir skólar geti haldið áfram starfi vegna fjarvista nemanda eða kennara.

Seltjarnarnesi, 12. ágúst 2009

Sóttvarnalæknir
Ríkislögreglustjóri, almannavarnadeild


Skráning á póstlista