Bakkafjörður - spennandi kostur fyrir ferðamenn
Fyrir skömmu tóku hjónin Þórir og Sædís á Bakkafirði við rekstri veitingahúss, tjaldsvæðis og gistingar í skólanum á Bakkafirði. Þau hafa á prjónunum ýmsar hugmyndir um hvernig megi laða að fleiri gesti til Bakkafjarðar, ekki síst nú þegar útlit er fyrir að komandi sumar verði "Íslendingasumar" eins og síðasta sumar vegna Covid. Þau hafa þegar sett inn á netið kynningu á Bakkafirði sem vakið hefur verðskuldaða athygli og sjá má á tenglinum hér að neðan. Þau ætla auðvitað einnig að höfða til þeirra erlendu ferðamanna sem vonandi leggja leið sína til Íslands í sumar. Það verður spennandi að sjá hvort það verði ekki líf og fjör á Bakkafirði og sú fjölbreytni sem þau hjón leggja áherslu á slái ekki í gegn hjá ferðamönnum jafnt sem heimamönnum.