Fara í efni

SPENNANDI OG KREFJANDI STARF

SPENNANDI OG KREFJANDI STARF SEM GEFUR MIKLA FRAMTÍÐARMÖGULEIKA!Laust starf hjá sveitarfélaginu Langanesbyggð!Langanesbyggð er sameinað sveitarfélag Skeggjastaða- og Þórshafnarhrepps og þar búa um 500

SPENNANDI OG KREFJANDI STARF SEM GEFUR MIKLA FRAMTÍÐARMÖGULEIKA!

Laust starf hjá sveitarfélaginu Langanesbyggð!

Langanesbyggð er sameinað sveitarfélag Skeggjastaða- og Þórshafnarhrepps og þar búa um 500 manns í sérlega fjölskylduvænu umhverfi. Undirstaða atvinnulífsins er öflugur sjávarútvegur - veiðar og vinnsla - sem hefur tryggt sig í sessi undanfarin ár og skapað forsendur fyrir aukinni þjónustu sveitarfélagsins. Í sveitarfélaginu er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og  glæsileg íþróttamiðstöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar í ósnortinni náttúru. Samgöngur eru góðar, m.a. er flug fimm daga vikunnar til Þórshafnar frá Reykjavík um Akureyri.

Æskulýðs- og menningarfulltrúi!

Laust er til umsóknar starf æskulýðs- og menningarfulltrúa Langanesbyggðar. 

Helstu verkefnin felast í því að samræma og efla starfsemi íþrótta- og æskulýðsfélaga í sveitarfélaginu, sinna samskiptum við menningarfulltrúa og stofnanir á öðrum svæðum, stjórnun og skipulagning menningarviðburða og vinna almennt að eflingu hvers konar félags- og menningarstarfssemi í sveitarfélaginu í samræmi við stefnu þess hverju sinni.

Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun á sviði æskulýðs- og menningarmála og/eða reynslu af störfum á þessum vettvangi. 

Leitað er eftir einstaklingi með frumkvæði og sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi en um leið spennandi verkefni í samfélagi sem er í mótun.

Umsóknarfrestur um ofangreint starf er til og með þriðjudagsins 18. nóvember nk. og skal senda umsóknir á skrifstofu Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn.

Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, sveitarstjóri, í símum 468 1220 og 895 1448 einnig má hafa samband um tölvupóst í bjorn@langanesbyggd.is.