Fara í efni

Stálgrindarhús rís við Langaholt

Fréttir
Það eru víða framkvæmdir stórar sem smáar í þorpinu. Við Langholt er Aðalbjörn Arnarsson að smíða sér 200 fermetra stálgrindarhús. Hann segir að húsið sé aðallega hugsað sem vinnu- og geymsluhúsnæði undir alls kyns verkfæri og dót þar sem hann er ekki með bílskúr heimavið, en hann starfar sem sjálfstæður verktaki. Grindurnar í húsið fékk hann á Jökuldal en þar var ónotuð skemma með góðum stálgrindum. Aðalbjörn stefnir á að steypa í gólfflötinn um helgina.

Það eru víða framkvæmdir stórar sem smáar í þorpinu. Við Langholt er Aðalbjörn Arnarsson að smíða sér 200 fermetra stálgrindarhús. Hann segir að húsið sé aðallega hugsað sem vinnu- og geymsluhúsnæði undir alls kyns verkfæri og dót þar sem hann er ekki með bílskúr heimavið, en hann starfar sem sjálfstæður verktaki. Grindurnar í húsið fékk hann á Jökuldal en þar var ónotuð skemma með góðum stálgrindum. Aðalbjörn stefnir á að steypa í gólfflötinn um helgina og segir að þetta mjakist svo áfram eftir því sem tíminn leyfi. 

Aðalbjörn við húsgrunninn