Fara í efni

Stefnt að sameiningu Sparisjóðsins í Keflavík og Þórshafnar

Fundur
7. nóvember 2007Forsvarsmenn Sparisjóðsins í Keflavík og Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis hafa gert með sér samkomulag um að leggja til við stjórnir sjóðanna að þeir verði sameinaðir. Jafnframt sten

7. nóvember 2007
Forsvarsmenn Sparisjóðsins í Keflavík og Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis hafa gert með sér samkomulag um að leggja til við stjórnir sjóðanna að þeir verði sameinaðir. Jafnframt stendur nú yfir sameiningarferli Sparisjóðsins í Keflavík við Sparisjóð Vestfirðinga og Sparisjóð Húnaþings og Stranda.

Í fréttatilkynningu kemur fram að áætlanir gera ráð fyrir því að stofnfé verði aukið í tengslum við sameininguna og að eigið fé sameinaðs sjóðs mun nema u.þ.b. 26,6 milljörðum króna.

Nú þegar er unnið að samrunaáætlun og nánari útfærslum. Endanleg ákvörðun um samruna er svo lögð fyrir fund stofnfjáreigenda sem gert er ráð fyrir að haldinn verði við fyrstu hentugleika. Samruni sparisjóða, eins og annarra fjármálastofnana er háður samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlits.

www.mbl.is