Stefnumót við íbúa
02.09.2013
Fréttir
Forsvarsmenn Samkaupa Strax á Þórshöfn boða "Stefnumót við íbúa" í Þórsveri 2. september kl. 17.30
Ágætu viðskiptavinir Samkaupa Strax.
Á dögunum var gengist fyrir undirskriftasöfnun þar sem skorað var á Samkaup að lækka vöruverð í verslun sinni á Þórshöfn. Í framhaldi þess lýstu Samkaup yfir áhuga á að eiga samræður við heimamenn um málefni verslunar á Þórshöfn til að afla frekari upplýsinga um sjónarmið íbúa.
Af þessu tilefni boða Samkaup nú til óformlegs samræðufundar með íbúum í félagsheimilinu Þórsveri nk. mánudag, 2. september kl. 17.30. Á fundinn koma Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, og Ómar Jónsson, rekstrarstjóri verslana Samkaupa Strax.
Verið öll velkomin, kaffiveitingar
F.h. Samkaupa, Ómar Valdimarsson, framkvæmdastjóri