Fara í efni

Steinholt - saga af uppruna nafna

Fréttir
Ljósmyndasýning Christopher Taylor verður í Sauðaneshúsi um helgina. Sýningaropnun er föstudaginn 21. júlí. Léttar veitingar í boði. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.
Ljósmyndasýning Christopher Taylor verður í Sauðaneshúsi um helgina. Sýningaropnun er föstudaginn 21. júlí. Léttar veitingar í boði. Allir velkomnir. Sýningin er opin laugardag og sunnudag frá kl. 11 til 17, enginn aðgangseyrir.
 
Á sýningunni verða valdar myndir af sýningu Christopher sem var sett upp á Þjóðminjasafni Íslands í vor og verður opnuð í Safnahúsinu í ágúst. Sýningin á uppruna sinn á Þórshöfn og nágrenni, þar sem Christopher hefur dvalið langtímum saman. Því var við hæfi að setja hana upp hér.

Steinholt – saga af uppruna nafna fjallar um minningu staðar. Christopher Taylor dvaldi á Þórshöfn og ferðaðist um svæðið þar í kring til að gera umhverfinu skil og greina frá minningum sem tengjast Steinholti.
Afi og amma Álfheiðar, eiginkonu Taylor, byggðu húsið Steinholt árið 1929. Þegar Álfheiður var barn var hún send yfir sumartímann í Steinholt til ömmu sinnar og nöfnu. Stundirnar þar eru meðal hennar bestu æskuminninga. Christopher Taylor vann að ljósmyndunum í kjölfar óvænts atburðar eftir heimsókn Álfheiðar í Steinholt eftir langa fjarveru. Sýningin er innblásin af forfeðrum Álfheiðar sem ferðuðust vítt og breitt um svæðið í leit að atvinnu eða búsetu.

Á árinu 2017 kom út bókin Steinholt með ljósmyndum Taylor. Í bókina rita Monica Dematté og Taylor sjálfur.
 
Sjá umfjöllun hér á Facebókarsíðu Sauðaneshúss.