Fara í efni

Steinholt – saga af uppruna nafna

Fréttir
Sýning Christopher Taylor, Steinholt, saga af uppruna nafna, er opin í Safnahúsinu á Húsavík

Sýning Christopher Taylor, Steinholt, saga af uppruna nafna er opin í Safnahúsinu á Húsavík.

Ljósmyndarinn Christopher Taylor, er fæddur og uppalinn í Bretlandi en er í dag búsettur í Frakklandi. Christopher hefur unnið að margvíslegum ljósmyndaverkefnum og haldið sýningar víða um heim. Steinholt – saga af uppruna nafna fjallar um minningu staðar. Christopher Taylor dvaldi á Þórshöfn og ferðaðist um svæðið þar í kring til að gera umhverfinu skil og greina frá minningum sem tengjast Steinholti. Eiginkona Christophers, Álfheiður, á rætur á Þórshöfn á Langanesi. Afi hennar og amma, byggðu þar húsið Steinholt árið 1929. Þegar Álfheiður var barn var hún send yfir sumartímann í  Steinholt til ömmu sinnar og nöfnu. Stundirnar þar eru meðal hennar bestu æskuminninga. Christopher vann að ljósmyndunum á sýningunni í kjölfar óvænts atburðar eftir heimsókn Álfheiðar í Steinholt eftir langa fjarveru. Sýningin er innblásin af forfeðrum Álfheiðar sem ferðuðust vítt og breitt um svæðið í leit að atvinnu eða búsetu.

Á árinu kom út bókin Steinholt með ljósmyndum Taylor. Í bókina rita Monica Dematté og Chirstopher sjálfur. Sýningin var sett upp í Þjóðminjasafni Íslands á fyrri hluta ársins og valin verk af sýningunni voru sýnd í Sauðaneshúsi fyrr í sumar.

Sýningaropnunin er öllum opin og sýningin stendur til septemberloka.