Fara í efni

Stofnfundur ferðafélags í Hafliðabúð í kvöld

Fundur
Til stendur að stofna ferðafélagsdeild fyrir Bakkafjörð, Langanes, Þistilfjörð og Sléttu.Stofn- og kynningarfundur deildarinnar verður haldinn í Hafliðabúð á Þórshöfn í kvöld, þriðjudagskvöldið 24. ma

Til stendur að stofna ferðafélagsdeild fyrir Bakkafjörð, Langanes, Þistilfjörð og Sléttu.

Stofn- og kynningarfundur deildarinnar verður haldinn í Hafliðabúð á Þórshöfn í kvöld, þriðjudagskvöldið 24. mars kl. 20:00-21:00. Stefnt er að stofnun deildarinnar, lagasetningu og stjórnarkjöri á fundinum.

Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands og Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ verða gestir á fundinum og kynna starfsemi félagsins. Allir áhugasamir hvattir til að mæta, enda er áhugi og vilji heimamanna grunnforsenda þess að hægt sé að drífa mikilvæga og skemmtilega starfsemi í gang.

Frekari upplýsingar veitir:
Sif Jóhannesdóttir
Sími: 464 0417, 848 3586
e-mail: sif@atthing.is