Fara í efni

Stofnfundur ferðafélags í kvöld

Fundur
Í kvöld, þriðjudagskvöldið 21. apríl verður stofnfundur ferðafélags fyrir svæðið frá Bakkafirði að Jökulsá. Fundurinn verður haldinn í grunnskólanum á Raufarhöfn og hefst kl. 20:30. Eftir er

Í kvöld, þriðjudagskvöldið 21. apríl verður stofnfundur ferðafélags fyrir svæðið frá Bakkafirði að Jökulsá. Fundurinn verður haldinn í grunnskólanum á Raufarhöfn og hefst kl. 20:30. Eftir er að setja félaginu lög, ákveða nafn og kjósa stjórn. Ýmsar tillögur hafa komið fram um nafnið á félaginu og í kvöld kemur í ljós hver niðurstaðan verður.
Allir sem hafa áhuga á útivist, ferðalögum og náttúruskoðun ættu að mæta og gerast stofnfélagar, sameinast í bíla og ferðast saman.
Einnig er hægt að gerast stofnfélagi og fá nánari upplýsingar hjá Sif Jóhannesdóttur í síma 464-0417 eða 848-3586 eða í netfang sif@atthing.is.