Stofnfundur ferðafélagsdeildar
Langar þig að taka þátt í skemmtilegu félagsstarfi sem stuðlar að útivist, hreyfingu og aukinni þekkingu á náttúrunni? Til stendur að stofna ferðafélagsdeild fyrir svæðið frá Jökulsá að Bakkafirði. Stofn- og kynningarfundur deildarinnar verður haldinn í grunnskólanum á Raufarhöfn, þriðjudagskvöldið 21. apríl kl. 20:30 Stefnt er að stofnun deildarinnar, lagasetningu og stjórnarkjöri á fundinum. .
Allir áhugasamir hvattir til að mæta, enda er áhugi og vilji heimamanna grunnforsenda þess að hægt sé að drífa þetta mikilvæga og skemmtilega starf í gang. Hægt er að kynna sér starf Ferðafélags Íslands og ferðafélagsdeilda sem starfa víða um land á heimasíðu Ferðafélags Íslands www.fi.is Frekari upplýsingar veitir: Sif Jóhannesdóttir Sími: 464 0417, 848 3586 e-mail: sif@atthing.is