Styrkir frá Evrópa unga fólksins (EUF)
Evrópa unga fólksins (EUF) veitir styrki til fjölbreyttra verkefna eins og t.d. í ungmennaskipti, frumkvöðlaverkefni, lýðræðisverkefni, sjálfboðaverkefni, þjálfun og samstarf.
Næsti umsóknarfrestur til að skila inn umsóknum er 1. september 2008. Umsóknarfrestir eru fimm sinnum á ári og er einnig hægt að sækja um styrk í áætlunina 1. nóvember á þessu ári.
Ég hvet ykkur til að fara inn á heimasíðu Evrópu unga fólksins, www.euf.is.
Hægt er að sækja um í eftirtalda flokka:............
Ungmennaskipti flokkur 1.1 og 3.1
Skólahópar, hópar úr félagsmiðstöðvum eða ungmannahúsum og þeir sem vinna fyrir og með ungu fólki geta myndað tengsl við sambærilega hópa í öðrum Evrópulöndum.
Frumkvöðlaverkefni flokkur 1.2
Ungir frumkvöðlar eru í öllum bæjarfélögum en styrkir eru veittir til verkefna sem unga fólkið kemur með hugmyndir að og skipuleggur vinnuna með aðstoð leiðbeinenda.
Lýðræðisverkefni flokkur 1.3
Verkefni í þessum flokki eru ætluð til þess að hvetja ungt fólk til lýðræðislegra ákvarðanatöku og til þess að þau láti sig umhverfi sitt skipta.
Sjálfboðaliðaþjónusta flokkur 2
Stofnanir innan sveitarfélaga geta búið til verkefni og fengið til sín sjálfboðaliða í 2 12 mánuði. Verkefnin geta verið t.d. að skipuleggja sumarhátíðir, vinna við minjasöfn, vinna með fötluðum, með börnum, í tengslum við frístundaheimili og fleira.
Stuðningskerfi ungmenna flokkar 4.3. og 5.1
Þjálfun, tengslamyndun og fjölbreytt samvinna í æskulýðsmálum.
Með kveðju,
Helga Dagný Árnadóttir
Evrópa unga fólksins / Youth in Action
Evróvísir / Eurodesk
Laugavegur 170
105 Reykjavík
Tel: +354 551 9300
Email: helga@euf.is
www.euf.is
www.eurodesk.eu
http://europa.eu/youth