Styrkir til menningar- og/eða listviðburða 2025
06.03.2025
Fréttir
Langanesbyggð auglýsir til úthlutunar styrki fyrir menningar- og/eða listviðburði í Langanesbyggð.
Styrkhæf verkefni eru þau sem tilgreind eru í 4. grein reglna um Menningarsjóð Langanesbyggðar en sjóðurinn starfar samkvæmt samþykktri Menningarstefnu Langanesbyggðar.
Greinargerð um verkefni sem sótt er um styrk til, skal fylgja með í umsókninni. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Langanesbyggðar merkt; Menningarsjóður – styrkumsókn fyrir 2. maí 2025.
Nánari upplýsingar um styrkina veita sveitarstjóri og skrifstofustjóri Langanesbyggðar í síma 468 1220 eða á langanesbyggd@langanesbyggd.is