Styrktarsamningur undirritaður við björgunvarsveitina Hafliða
02.12.2022
Fréttir
Reynir Atli Jónsson varaformaður bjsv. Hafliða og Björns S. Lárusson sveitarstjóri handsala samninginn
Sveitarfélagið Langanesbyggð og björgunarsveitin Hafliði hafa undirritað styrktarsamning til 3 ára. Sveitarfélagið styrkir sveitina með föstu framlagi sem nemur einni milljón króna á ári frá 2022 til 2024. Þetta var samþykkt við afgreiðslu fjárhagsáætlunar sveitarfélagins í gær, fimmtudaginn 1. desember.