Fara í efni

Sumarafleysingar á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Nausti

Fréttir

Við á hjúkrunarheimilinu Nausti óskum eftir að ráða til okkar sumarafleysingarmenn í aðhlynningu.

Naust er hjúkrunar-og dvalarheimili fyrir 14 íbúa.

Við leggjum áherslu á að hafa notalegt og heimilislegt andrúmsloft.

Hæfniskröfur: 

- Æskilegt að umsækjandi hafi náð 18 ára aldri

- Jákvæðni og vinnusemi

- Sjálfstæði og stundvísi

- Góð færni í samskiptum og áhugi á að starfa með eldra fólki

- Góð íslenskukunnátta er skilyrði

 

Umsóknarfrestur er til og með 11 maí 2023

Umsóknum skal skilað á netfangið naust@langanesbyggd.is

Nánari upplýsingar veitir Herdís Eik Gunnarsdóttir, forstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is