Sumarafleysingar á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Nausti
25.03.2024
Fréttir
Við á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Nausti óskum eftir að ráða til okkar sumarafleysingu í eftirfarandi störf.
- Afleysing í aðhlynningu
- Ræsting
Naust er hjúkrunar- og dvalarheimili með rými fyrir 14 íbúa.
Við leggjum áherslu á að hafa notalegt og heimilislegt andrúmsloft.
Hæfniskröfur:
- Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 18 ára aldri
- Jákvæðni og vinnusemi
- Sjálfstæði og stundvísi
- Góð færni í samskiptum og áhugi á að starfa með eldra fólki
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2024
Umsóknum skal skilað á netfangið dvalarheimilid.naust@langanesbyggd.is
Nánari upplýsingar veitir Þóra Magnúsdóttir, forstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið dvalarheimilid.naust@langanesbyggd.is