Fara í efni

Sumarlokun bókasafnsins á Þórshöfn - flytjum bókasafnið heim !

Íþróttir
Bókasafnið á Þórshöfn sendir frá sér tilkynningu um sumarlokun. Þar segirKæru viðskiptavinir, nú líður að sumarlokun. Fimmtudaginn 18. júní kl. 17:15 - 19:15 verður síðasta opnun að sinni. Þar sem fluBókasafnið á Þórshöfn sendir frá sér tilkynningu um sumarlokun. Þar segir
Kæru viðskiptavinir, nú líður að sumarlokun. Fimmtudaginn 18. júní kl. 17:15 - 19:15 verður síðasta opnun að sinni. Þar sem flutningur bókasafnsins stendur fyrir dyrum er fólk beðið að birgja sig sem mest upp af bókum til sumarlesturs og vera duglegt að lesa í sumar. Bókunum má svo skila þegar bókasafnið opnar á nýjum stað.
Sumarlestur, sólbaðslestur, útilegulestur, ferðalestur, sumarfríslestur - lesum sem mest í sumar okkur til gagns og gleði og léttum flutning bókasafnsins!