Þá fer að líða að því !
10. júní 2008
Helgina 28 og 29 júní er fyrirhugað að leggja upp í hina árlegu hestaferð kvenna,undir góðri leiðsögn Binnu frá Tunguseli.
Síðastliðið sumar var farið í Tunguselsheiði og gist í Vesturheiðarkofa. Þar var grillað,kveiktur varðeldur,dansað og sungið fram á rauða morgun.
Daginn eftir var riðið í Austurheiðarkofa og þaðan út og komið niður hjá Kverkárgljúfrum.
Stórkostleg ferð í blíðskaparveðri og góðum félagsskap eins og meðfylgjandi myndir sýna.
Ekki er búið að ákveða hvert á að fara núna, en það ræðst af gróðri og færð í heiðinni. Nú er bara að drífa sig og verða sér út um hest og tilheyrandi og skrá sig í þáttöku hjá Guðrúnu Helga í síma 699 1217 eða 468 1217.
Binna verður svo með námskeið í vikunni fyrir ferðina fyrir þær sem það vilja.
Ferðin og námskeiðið verður svo auglýst nánar síðar.
Kveðja Steina Leós
steinaleos@simnet.is