Fara í efni

Þingeyskt og þjóðlegt handverk!

Málþing í Skúlagarði, KelduhverfiSunnudaginn 26.04.2009, kl. 13:00-17:00Verkefnið Þingeyskt og þjóðlegt snýst um að viðhalda þjóðlegum menningararfi í handverki, með áherslu á Þingeyjarsýslur. Málþing

Málþing í Skúlagarði, Kelduhverfi
Sunnudaginn 26.04.2009, kl. 13:00-17:00

Verkefnið Þingeyskt og þjóðlegt snýst um að viðhalda þjóðlegum menningararfi í handverki, með áherslu á Þingeyjarsýslur. Málþinginu er ætlað að hjálpa til við að skilgreina hvað er þingeyskt og þjóðlegt og er handverksfólk hvatt til að mæta vel.

Dagskrá

Setning 

13:00 Hulda Jónsdóttir, verkefnisstjóri Þingeyskt og þjóðlegt  setur málþingið.
Framsöguerindi 

13:10  Sigrún Kristjánsdóttir, þjóðfræðingur og væntanlegur forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. - Þjóðlegir minjagripir: hugmynd, hönnun og sala.

13:30  Oddný  E. Magnúsdóttir, þjóðfræðingur -  Hefur handverk landamæri?

13:50  Guðrún Hadda Bjarnadóttir, veflistakona -  Hnífar eru drjúgir til afþreyingar

14:10  Jón Hólmgeirsson, húsgagnasmiður - Útskurður

14:30  Jenný Karlsdóttir, kennari. - Munstur og menning.

14:50 -15:10  Fyrirspurnir.

15:10 -15:40  Kaffihlé veitingar í boði Þingeyskt og þjóðlegt.

15:40 -16:40  Umræðuhópar.

16:45 17:00  Niðurstöður úr umræðuhópum kynntar.

17:00  Málþingi slitið.

Menningarráð Eyþings styrkir verkefnið.